Skari:
Þó enginn sé andlega hliðin
Og óvist um gáfnaðar hollt
Ég skal tíunda sjónarmiðin
Takmark mitt, heiður og stolt
Er ég lit á lafandi tungur
Er ljóst að þið skiljið ei hót
Hver treystir á taumlausar gungur?
Þegar tigið blóð stendur í mót!
En nú er að duga eða drepast
Þessi dagur mun gera okkur fræg
Nú stundin er runnin
Og örlögin spunnin
Shenzi:
Fáum við einhvern bita?
Skari:
Það skaltu vita!
Ég veit það er þvæla
Að launa ykkur þræla
Þegar loks ég sæki minn hlut
Og réttlætið sigrar í höll
Viðbúin öll!
Banzai:
Já, við erum viðbúin! Við erum viðbúin!
Hverju?
Skari:
Fyrir dauða konungsins!
Banzai:
Er hann veikur?
Skar;
Nei, fifl, við murum myrða hann,
og Simba líka.
Shenzi:
Fín hugmynd, burt með kónga!
Hýenur:
Kónginn burt, kónginn burt,
La la la la la la!
Skari:
Hálfvitar! Það mun verða kóngur!
Banzai:
En þú varst að segja...
Skari:
Ég verð kóngur!
Fylgið mér, og ykkur mun aldrei þyrsta eða hungra framar!
Hýenur:
Lifi kóngurinn!
Lifi kóngurinn! Lifi kóngurinn!
Það kætir að kóngur sé mildur
Sá kóngur mun elskaður heitt
Skari:
Þið skuluð vita að það bíða ykkur skyldur
Þótt skipulagið verði breytt
Þið fáið umbun og æru
Meðan ég um stjórnina sé
En hafið það alveg á tæru!
Án mín hvorki frægð né fé!!!
Verið viðbúin valdaráni
Verið viðbúin blóðugri dáð
Kænskuleg hönnun
(Við vlijum mat)
Þolgæðis könnun
(Ekkert frat)
Endalaus höfnun
(Étum á)
Liði því söfnum
(Okkur gat)
Og vinnum vér krúnu
Og að því búnu
Ég ríki mörg þúsund ár!!!
Já, blóðið mun lita minn völl
Viðbúin öll!
Já, blóðið mun lita völl
Viðbúin öll!