A: Það er krýningardagurinn
Það er krýningardagurinn!
Glugginn er opin og þessar dyr
Nei, aldrei hef ég séð það gerast fyrr
Og áttaþúsund diskar fara á skrið
Ég hef ráfað um tóma stásali
Dansað ein á auðu dansgólfi
Loksins opnast upp hin miklu hlið
Það verða alvöru, ekta mannfólk
Pað verður stórfurðulegt
En vá, mér finnst það alveg æðislegt
Því núna loks er allt að gerast
Pað verður tónlist, ljósfjöld
Því nú loks er allt að gerast
Ég mun dansa fram á kvöld
Ég er víst bæði ringluð og rugluð
Og ég má ekki verða sein
Því núna loks er allt að gerast
Ég verð ekki ein
Ég get ekki beðið eftir hitta alla
Hvað ef ég hitti "Þann Eina"?
í kvöld ég klæðist í fínan kjól
Stórkostleg verður mín frægðarsól
Ég stend þar eins og fáguð þokkadís
Skyndilega sé ég hann standa þar
Ókunnug sjarmör af öðrum bar
Og ég treð mig út sem súkkulaðigrís
En síðan hlæjum við og tölum
Sem er afar undarlegt
Líkist engu sem ég hef áður þekkt
Því nú loks er allt að gerast
Það verða töfrar, glens og grín
Því nú loks er allt að gerast
Ég verð algjör undrasýn
Og ég veit það hljómar skrítið
Að dreyma um kossaflens
Því núna loks er allt að gerast
Ég á þá alltént séns
E: Hleyp þeim ei inn, lát þau ei sjá
Vertu góða stúlkan sem að þekkja má
Feldu, bældu, settu upp svip
Gerðu ein mistök og allir munu sjá
E: En það er bara þennan dag
A: það er bara þennan dag!
E: Ég þol ei þessa bið
A: Ég þol ei þessa bið
Elsa: Látið verði opna upp
Þau hlið
Anna: Þau hlið!
Því nú loks er allt að gerast
E: Hleyp þeim ei inn, lát þau ei sjá
A: Ég fæ það sem mig dreymir um
E: Vertu stúlkan bín sem að bekkja má
A: Já, kannski get ég öllu breytt
E: Feldu þig
A: Og kannski finn ég ást
E: Feldu, bældu, lát þau ei sjá
A: Ég veit því lýkur á morgun
Svo pað gerast mun í dag
Því núna loks er allt að gerast
Því nú loks er allt að gerast
Allt er þá í lag!