current location : Lyricf.com
/
Songs
/
Undir stjörnubjörtum himni lyrics
Undir stjörnubjörtum himni lyrics
turnover time:2024-10-05 17:31:23
Undir stjörnubjörtum himni lyrics

Ég tylli mér á rúmstokkinn hjá þer

Og þú hlærð við mér

Og heimurinn hann staldrar við um stund

Er ég lít þig á

Þú kúrir þarna ofur róleg

Og virkar svo ótrúlega smá

Með bláu augun þín

En í draumalandi göngum við tvær veginn

Og finnum okkur ævintýr

Undir stjörnubjörtum himni siglir þú með mér

Loka þú nú þreyttum augum svo förum við af stað

Við siglum yfir vatnið inn í draumalandið þú og ég

Og ef þú verður smeyk við vindinn

Þá faðma ég þig þéttar upp að mér

Hvert sem þú ferð um draumalönd

Þín vil ég alltaf gæta fagra litla vera

Legðu lófa þinn í minn

Undir stjörnubjörtum himni siglir þú með mér

Loka þú nú þreyttum augum svo förum við af stað

Við siglum yfir vatnið inn í draumalandið þú og ég

Draumalandið þú og ég

Comments
Welcome to Lyricf comments! Please keep conversations courteous and on-topic. To fosterproductive and respectful conversations, you may see comments from our Community Managers.
Sign up to post
Sort by