Ég sé hvað er að gerast
Hvað?
Þau hafa ei grænan grun
Hver?
Og Amor karlinn
Örvum miðar nú
Eftir sitjum ég og þú
Ó
Í sólarlagsins eldi
Er hjarta mitt eins og fis
Og þetta er töfrum slungið stjörnukvöld
Og stefnir beint í slys
Ástin opnar augun skær
Og andar sælu sérhvert strá
Nú glitrar vatn og vaka stjörnuljós
Vítt um himinsjá
Orðin fylla hugann
Svo margt á tungu knýr
Fortíð sem er falin – ekki það
Hún baki við mér snýr
Það er eitthvað sem hann angrar
Einhver dulin hjartasorg
Hann er konungur, það er morgunljóst
Hann mun ríkja í klettaborg
Ástin opnar augun skær
Og andar sælu sérhvert strá
Nú glitrar vatn og vaka stjörnuljós
Vítt um himinsjá
Ástin opnar augun skær
En ekki líta langt
Glitrar vatn og góð er nóttin þeim
Sem ástin hefur snert
Og ef svo ástin snertir hann
Á ég á því von
Og okkar samfylgd
Er nú fyrir bí
Fyrst hann er genginn úúúúúút...