MARY POPPINS
Í herberginu ykkar voruð aldrei ein
Alltaf beið á hillu veröld hrein og bein
Á hverju kvöldi, mætti fjöldi og leiddur var í hlað
Inn að seiðandi og sönglandi sérlega töfrandi stað
Í þeirri mætu og dýrðlegu, dýru og dýrmætu Royal Doulton-skál
Má sjá ljúfar og hrjúfar og krúttlegar skepnur sem sitja að sumbli öll mál
Leynast apar og kólibrí, öskur og dirrindí, dýr öll um fjöll og dal
Dyrka dafnandi og drynjandi æ meira drífandi, Royal Doulton-tónleikasal
MARY POPPINS & JACK
Í þessa frábæru, fíngerðu, frálegu fínerís Royal Doulton-skál
JACK
Fljúga fuglarnir gogglangir
Grísirnir glorsvangir
Éta allt upp eins og kál
Þenja kettirnir strengina
MARY POPPINS
Þrestirnir vængina
MARY POPPINS & JACK
Ómandi raul og tal
JACK
Í þeim aldeilis ágæta
MARY POPPINS
Flotta og fágæta
MARY POPPINS & JACK
Royal Doulton
MARY POPPINS, JACK & BÖRNIN
Tónleikasal!
ENSEMBLE
Í þessum virta og vænlega, listuga og laglega
Glæsta og glanslega, ljómandi og líflega
Royal Doulton
Tónleikasal!