Nú alltaf er að gerast ævintýri á New York götum
Þó að ýmsum þyki borgin köld og grá
Ef þú klókur ert, minn kæri þar
Of ef kæmist þú í tæri þar
Þá er alltaf einhver færi þar að fá
Og í borginni er alltaf hægt að byrja að nýju
Og þú braggast uns þú verður ofaná
Enginn spurði um fyrri stöðu og stétt
Ef þú stendur þig er leiðin létt
Og þín ævintýri engan endi fá
Og áfram nú Óliver
Dragðu nú ekki af þér
Því sá sem beiðið er
Má vera að sért þú
Dragðu drauma mynd
Að dreyma er engin synd
Því ævintýri eru enn að gerast
En ef ævintýri eru enn í dag að gerast
Því er einsemd til í svona mannamergð
Þegar rok og rigning lemur mann
Já, þá rumskarðu við sannleikann
Og finnst þér regnið segja: "Þú ert einn á ferð"
Þó ógni þér mennirnir
Og allir þig hæddu fyrr
Mun opnast þér allar dyr
Til alls sem þú vilt
Leyfðu þér að þrá
Þráin er skjól þegar bjátar á
Þar til ævintýrin aftur gerast
Dragðu drauma mynd
Að dreyma er engin synd
Því ævintýri eru enn að gerast
Leyfðu þér að þrá
Þráin er skjól þegar bjátar á
Þar til ævintýrin aftur gerast
Já, og ævintýri eru enn í dag að gerast