Norðanvindur strýkur haf
Þar er áin, allra minninga
Sofðu, ástin, blítt og vært
Því allt hún geymir okkur kært
Þar hún streymir, djúp og breið
Og þér sýnir þína ævileið
Kafðu djúpt í hennar hljóm
En ekki of langt þá færð þinn dóm
Hún syngur allt sem syngja má
Hún syngur um þinn töfradraum
En líka um þá sem hug þinn hrjá
Þolir þú þann stríða straum?
Norðanvindur strýkur haf
Þar er móðir sem sögur gaf
Komdu, ástin, heima er vært
Þar allt við finnum okkur kært