current location : Lyricf.com
/
Songs
/
Með Jötnum lyrics
Með Jötnum lyrics
turnover time:2024-10-04 18:53:56
Með Jötnum lyrics

Æsist jötunn, eðlishvöt

Oss frá glötun bjargar.

Rífur göt á feld og föt

flensar kjöt og sargar.

Skriðjöklar gnauða og skrafa í myrkrinu

Skjálfti um höfðana fer.

Koma þau skriðandi úr kafi.

Kafloðin skrímslin úr hafi.

Bryðjandi grjótið og bergið og þufurnar,

berstur í öllu sem er.

Stætt er þá engum á ströndum.

Storknað er blóðið á höndum.

Ver öss vökull

Vatnajökull.

Dansar dátt mey.

Dyrhólaey.

Vaknar í látunum vínur úr dvala og veður í óvinaskaut.

Hann er með konu á herðum

hér vinnur boginn á sverðum.

Stafnum í Jörðína stingur hann hamrammur,

Stökva þá dýrin á braut.

Brotnaði rísinn úr bergi,

berserkur hvíkar nú hvergi.

Skelfur jörð.

Skelfur þar jörðin er skellur.

skaftíð á hraunlagðar hellur.

Stenður vörð.

Stenður hann vörð þegar steðjar að hætta

Hann stendur með okkur og fellur.

Falla lauf.

Falla þá laufin að foldu.

Frjósa lík saman við moldu.

Birtan dauf.

Birtan er dauf þegar bardaga lýkur.

Þar bíða þau tvö sem að földu.

Brotnar sjór.

Brotnar þar sjórinn á bergi,

bátarnir þoldu víst hvergi.

Hverfur mór.

Hverfur af mórinn en hvítslegin björgin

Víst hvíla á eldgömlum mergi.

Kólnar blær.

Kólnar svo blærinn og kreppir.

Kverkunun risinn ei sleppir.

Losna klær.

Losnar um klær þegar lífið út fjarar.

Og Loki þá óvininn hreppir.

Halda bönd.

Halda þau bönd er við hnýttum,

Heiðrum þær stundir er nýttum.

Jötnahönd

Jötna með hönd var þar járnstafur reistur,

Í jarðvegi lenti hann grýttum.

Sofna börn

Sofna loks börnin er sekkur,

sólin við fjarlægar brekkur.

Bæjartjörn

Bæjarins tjörn tekur

blásvartan skugga er bergrisinn úr henni drekkur.

Jötnahönd, járn-með vönd

jökull skelfur, freyðir strönd.

jafnan halda engin bönd.

Jötnahönd, Jötnahönd.

Jötnahönd, járn-með vönd.

Jörðin opnast, sökkva lönd.

Jakar iss við sjónarrönd.

Jötnahönd, Jötnahönd.

Comments
Welcome to Lyricf comments! Please keep conversations courteous and on-topic. To fosterproductive and respectful conversations, you may see comments from our Community Managers.
Sign up to post
Sort by