Þegar allt hér um kring virðist aflagað
að mér sækir skuggaher
Verma minningar vonglaðar hjartastað
þegar ég veit ekki neitt hver ég er
Ég vil liggja í leiftri stjarnanna
leika í mosanum um skeið
nota ljóma norðurljósanna
Til að lýsa okkar leið
Undir niðri nagar í hengla
Niður allt sem mér er fallið í skaut
Er í mannaheimum pláss fyrir engla
sem að hringsóla á eilífðarbraut
Þú varst minn eldmóður og óskaskrín
einnig sólargeisli um nótt
En hún er veik, hún er veik elsku vonin mín
góðir vættir sofa rótt
Undir niðri nagar í hengla
Niður allt sem mér er fallið í skaut
Er í mannaheimum pláss fyrir engla
sem að hringsóla á eilífðarbraut
Sem að hringsóla
Sem að hringsóla
Undir niðri nagar í hengla
Niður allt sem mér er fallið í skaut
Er í mannaheimum pláss fyrir engla
sem að hringsóla á eilífðarbraut