current location : Lyricf.com
/
Songs
/
Helvíti [English translation]
Helvíti [English translation]
turnover time:2024-09-19 15:40:35
Helvíti [English translation]

[laughter]

Þegar sól er yfir sundi og döggvot er grundin,

hverfandi stundin, ég er týndur og fundinn,

djöflinum bundinn, ég er snúinn og undinn,

um stund ég fer á fund við þríhöfða hundinn

Skjálfandi sjálfið, síhrædda sálin,

fingurnir gæla við blákalda stálið

Brennandi bálið aftrar minni för,

sjón tekur að sortna, hjartslátturinn ör

Kveljandi kvöð ýtir mér áfram,

gangandi þangað til gamanið klárnar

Þríhöfða viðrinið blasir við þarna

Sýn þessi skelfir mig djúpt inn að kjarna

Sársauki gerir mér ókleift að standa,

liggjandi hérna án fóta og handa

Margt er um manninn hér, einn meðal margra

Allir þjást þeir, langar sálu að farga

En hey, þetta er bara tilvist mín

Ég er dæmdur til að dúsa í Helvíti

Og ég veit vel að tilhugsunin skelfir þig,

eins og dusilmenni sem ætlar að snerta þig

Hérna færðu grjót að borða, ekkert meðlæti,

Sódóma, Gómorra, orgíur og ofblæti

Hér á bæ ríkir eilíft einræði

En hvað hélstu, tík, þú ert í Helvíti

Þar sem hitinn er mestur, í sjöunda hring,

syrgi ég sárt þá sem lifa í synd

Sæl sólin kætir hvert einasta sinn

sótsvartur skuggi þó svertir þá mynd

Syndandi í sífellu, læstur í kapellu,

slægur í atferlum, í musterum fjölmennum

deilandi boðskapnum, blandandi staðreyndum

lygar uppsoðnar af svikurum margreyndum

Er í eilífri afeitrun, eldur í þakinu

sprengjan hún springur, þú liggur í brakinu

farinn í bakinu, sífellt með standpínu

hugur þinn fullur af ókunnum andlitum

Sorgin er svo mikil, söknuður tærir þig,

Minningar æra þig, sársauki nærir þig

Og þú heldur að þú eigir ennþá von?

Þú fæddist fallinn eins og vananda son (eins og vananda son)

En hey, þetta er bara tilvíst mín

Ég er dæmdur til að dúsa í Helvíti

Og ég veit vel að tilhugsunin skelfir þig

eins og dusilmenni sem ætlar að snerta þig

Hérna færðu grjót að borða, ekkert meðlæti,

Sódóma, Gómorra, orgíur og ofblæti

Hér á bæ ríkir eilíft einræði

En hvað hélstu, tík, þú ert í Helvíti

Svo velkomin til Helvítis

Velkomin til Helvítis

Velkomin til Helvítis

Velkomin til Helvítis

Ég segi velkomin til Helvítis

Velkomin til Helvítis

Velkomin til Helvítis

Velkomin til Helvítis

Velkomin til Helvítis

Velkomin til Helvítis

Velkomin til Helvítis

Velkomin til Helvítis

Velkomin til Helvítis

[laughter]

Comments
Welcome to Lyricf comments! Please keep conversations courteous and on-topic. To fosterproductive and respectful conversations, you may see comments from our Community Managers.
Sign up to post
Sort by