Sæfinnur : Aríel. Hlustaðu á mig.
Þarna uppi er allt í steik.
Lífið neðansjávar er langtumbetra en uppi þar.
Í sjónum er sífelld sveifla, ég segi og skrifa það.
Þig þyrstir í fasta landi, en þarft alltaf að fara í bað.
Hvar finnurðu slíka fegurð? Hvar finnurðu frið og ró?
Ég segi þér þetta er málið. Hér þarf hvorki hatt né skó.
Í grænum sjó. Í grænum sjó.
Hér áttu heima, hættu að dreyma, hlustaðu á mig.
Uppi þeir streða títt og ótt.
Slíta sér út af fram á nótt.
Á meðan við fljótum, og skjótum með rótum.
Í grænum sjó.
Hér er alltaf allt í standi, og eilífur fiskafans.
En þorskar á þurru landi, þeir gera þar stuttan stans.
Þeir lenda í þröngum búrum, og enda á einum stað.
Á diskum hjá svongu fólki.
Fish : Þú ættir að reyna það
Sæfinnur : Ónei
Í grænum sjó. Í grænum sjó.
Hér ertu hólpin, hér aldrei étin, hlustaðu á mig.
Uppi þeir háma þig í sig. Uppi er hitinn 100 stig.
Þú ert í lagi, í heilu lagi.
Í grænum sjó (í grænum sjó) Í grænum sjó (í grænum sjó)
Óþarfi að fara, úr þessum þara, hlustaðu mig (Hlustaðu á mig-ig-ig-ig)
Styrjur og skötur eiga til, að spila á hljóðfæri og spil.
Hérna er fjörið. Hérna er stuðið.
Í grænum sjó.
Heyr flautunnar óm, og hörpunnar hljóm.
Og bassann í gang, og syngjandi þang,
Og látúnið hátt, og trommunar slátt,
Og þarna fer blúsarinn
Fish : Já
Sæfinnur : Heyr taktfastan ál, og strengi í smá mál,
Og silunga dansa, og söngur með glans
Sjá bleikt út á hlið, og blátt niður á við
Og gúbbífiskur blæææææs.
Jáááá,
Í grænum sjó (í grænum sjó)
Í grænum sjó (í grænum sjó)
Sardínur sveima,tónarnir streyma
Hlustaðu á mig (hlustaðu á mig)
Hvað þarftu að sækja upp á land.
Hérna er hörku sædýraband.
Hver einasta aða, gerir þig glaða. Í grænum sjó
Marglittumambó, Miðnæturtangó Í grænum sjó
Saxafón sniglar, fjölhæfir fiskar.
Hérna er hitinn, hérna er svitinn.
Hér áttu heima, hættu að dreyma
Í GRÆNUM SJÓÓÓÓÓ