Ég þekki þig og þínar langanir
Ég þekki þig og þínar skoðanir
Ég þekki þig og allt sem í þér býr
Ég þekki þig en þú þekkir mig ekki!
Þekkir mig ekki!
Þú lætur vind um eyru þjóta Dögg
Þú hatar blús og þessi þungu högg
En það er ég sem ligg á gullinu
Ár eftir ár og þú bíður og bíður!
Opnaðu munninn og ég gef þér mola.
Mátturinn ólgar í mér,
Dýrðin er innan í þér.
Ég er að koma!
Ég þekki þig
Ég þekki þig
Ég þekki þig
Þó að þú þekkir ekki mig
Þú sýpur á
Og síðan tæmist ótt,
Svo bætist í og fyllist furðu fljótt.
Þú sýpur á og sopinn glepur þig.
Þú sýpur á og tekur og tekur
Og tekur!
Ég veit að þú ert ein í öldudal
Og önnur nótt er það sem koma skal.
Já, enn sem fyrr er sama spilið upp
Óbreyttur her og brögðin þau sömu.
Opnaðu munninn og ég gef þér mola.
Mátturinn ólgar í mér,
Dýrðin er innan í þér.
Ég er að koma!
Ég þekki þig
Ég þekki þig
Ég þekki þig
Þó að þú þekkir ekki mig