Hvað var þetta? Amelia?
Þetta mun allt skýrast er ég eldist
Dag einn mun þetta öðlast einhvern sans
Dag einn þessi bunki af ís
Verður gamall, klár og vís
Það er eðlilegt í lífi, hvers einasta manns
Ég mun fá öll svörin er ég eldist
Hvað er með þennan dimma töfraskóg?
Ég veit að eftir nokkur ár
Virðist þetta algjört fár
Ég get bara ekki af honum fengið nóg
Afsakið mig
Svo lengi lærir sem lifir
Ekki er gott að halda sig til hlés
Þegar þroskast ég
Verð ég öruggur alveg
Þótt einhver horfi á mig með skrýtið, skrýtið fés
Sko, þetta mun allt skýrast er ég eldist
Það er engin þörf að óttast þennan dans
Og mig dreymir um þá tíð
Þegar ég á aldur skríð
Því er ég eldist
Allt það öðlast algjörlega sans
Et er gott