Vaskur björn
vængjaglit
guggin er vetrarsólin
og ég man að einhver söng
eittsinn rétt fyrir jólin
Örugg þarna uni mér
úti hríðin leikur sér
stíga fætur stoltan dans
á ströndu draumalands
Örugg þarna uni mér
úti hríðin leikur sér
stíga fætur stoltan dans
á ströndu draumalands
Lifir enn minning mín
merglar í fylgsni sálar
lifnar við er ljósið dvín
litir og myndir strjálar
og ég man einhver söng
eitt sinn rétt fyrir jólin.