Þú blekktir mig
í fjórtán ár
Þú laugst að mér
Sagan er orðin kunnugleg
Hringrásin væri grátbrosleg
Ef ég væri ekki fangi þinn,
þrællinn þinn,
þú drottnarinn
Ef ég væri ekki fangi þinn,
þrællinn þinn,
þú drottnarinn
Þú svívirtir mig
aftur og aftur
Sagan er orðin kunnugleg
Hringrásin væri grátbrosleg
Sagan er orðin kunnugleg
ef ég væri ekki fangi þinn
Komdu nú til mín
Vertu nú hjá mér,
hjá mér
Sýndu mér miskunn
Mér er nú vorkunn,
já, vorkunn
Allt sem þú aðhefst,
allt sem þú gafst mér
ég trúi á
Ef ég væri ekki fangi þinn,
þrællinn þinn,
þú drottnarinn
Ef ég væri ekki fangi þinn,
þrællinn þinn,
þú drottnarinn
Ef ég væri ekki fangi þinn,
þrællinn þinn,
þú drottnarinn
Ef ég væri ekki fangi þinn,
þrællinn þinn,
þú drottnarinn